Salagrill

Fórum í Salagrill í Kópavogi í dag. ég hef ekki farið í þessa sjoppu í nokkur ár því að hún var ömurleg hér áður fyrr. Matseðillinn er stór og flottur og úr nægu að velja þar. Nóg er líka af borðum og stólum þar til að borða við. Bjarki fékk sér Baconborgaramáltíð og ég pepperoniborgaramáltíð á 900 kall á mann sem er fínt verð. Borgararnir voru vel útilátnir með káli, gúrku og rauðlauk. Og bragðið var bara þokkalegt líka. Franskarnar voru ekki nógu góðar, greinilega steiktar í sömu olíu og fiskur eða  eithvað álíka. Þjónustan var fín og boðið var upp á hnífapör með matnum. Við eigum eftir að fara þangað aftur og prófa fleiri rétti af matseðlinum.

Kveðja Raggi smiður.  


Wilsons

Fórum í gær á Wilsons pizza við Skeiðarvog. Okkur hafði verið bent á tilboð þar á borgara og pepsi á 500 kall. Borgarinn á auglýsingunni á staðnum var með káli, gúrku og papríkun en sá sem við fengum var með einu kálblaði. kjötið í borgaranum var eins og við var að búast fyrir þennann pening ekki merkilegt. kálblaðið var fínt. Við erum ekki hrifnir af því að fá ekki kók með matnum okkar þannig að þarna er stór mínus. Maturinn var semsagt ekki merkilegur en bara það sem við bjuggumst við fyrir þennan pening.

Kv. Raggi

 


metro

Við skelltum okkur á metró í vikunni ekki með háar væntingar Raggi fékk sér tvo ostborgara franskar og kók borgararnir eins og þeir eru á þessum stað ótrúlega smáir og ó merkilegir en franskarnar klikka ekki. Ég fékk mér matcho natco borgara og var kvíðinn enn þetta kom skemmtilega á óvart vel útilátin borgari með góðu kjöti og slatta af grænu dóti eina sem er að mætti vera sterkara salsabragð er frekar bragð daufur enn betra enn maður hélt .Þetta verður seint flokkaður sem gæða staður enn maturinn er ódýr og eins á milli heimsókna og þúsund kall er sirka verðið fyrir herlegheitinPolice matar löggan kveður

Hlölli

Við fórum á hlölla uppi á höfða í gær. Bátur og kók á 1200 kall. Fengum okkur báðir "Tudda" sem er með nauti og baconi. Það hefði mátt vera meir af baconi og nautið var ekki merkilegt. Ég hafði vit á að biðja um littla sósu á minn en Bjarki ekki og viti menn það var of mikið af sósu á bátnum hans. Það virðist vera sem að sumir  halda að því meira af sósu því betra eigi alltaf við. Þjónustan var mjög hröð eins og venjulega hjá þeim og báturinn alllt í lagi. Mar fær sér bara öðruvísi bát næst.

Kvþ Raggi.


Hamborgarasmiðjan Smiðjuhverfi

fór í gær á hamborgararsmiðjuna,hafði heyrt góða hluti.

Staðurinn leit vel út, maður fékk strax góða tilfiningu fyrir honum.
berneise-borgara tilboð varð fyrir valinu, sem var borgari með
smjörsteiktum sveppum,baconi,káli, tómötum og auðvita berneise,

sveita-frönsku, þessum stóru með hýðinu utaná og sallati. 

Herlegheitin kostuðu 1450 mwð kók, sem er í dýrari kantinum fyrir
iðnaðarmann í hádeginu.

Franskarnar voru hrikalega góðar, berneise sósan sem ég fékk með
þeim var slök, og verð að segja að ég varð fyrir vonbrigðum með borgarann ! 

Get samt ekki útilokað staðinn því að það er margt annað á matseðlinum, en
verð að setja spurningarmerki við restina, þar sem hamborgarinn var slakur á
HAMBORGARASMIÐJUNNI ....

Kveðja Bjarki 


Pizzan og Eldsmiðjan

Búnir að vera latir að skrifa seinustu daga en nú kemur loks meiri fróðleikur. Fórum á Pizzuna annann daginn í röð á fimmtudag og það klikkaði ekki frekar en fyrri daginn. Fengum í gær Pizzu frá Eldsmiðjunni. Af eldbakaðri pizzu að vera var hún ekki merkileg. Fullt af öðrum stöðum með betri eldbakaðar lummur.

Kv. Raggi.


Pizzan

Fór á Pizzuna í Núpalind í dag. þurfti að fara einn því að að Bjarki var heima að skeina sér. Pizzan er einn af þeim stöðum sem ég borða hvað oftast á enda eðal lummur þar á ferðinni. Fékk mér eina með pepperoni, kjúlla og chillí, flott blanda. Pizzan stóð fyrir sínu eins og venjulega og þangað fer ég aftur og aftur.

Kv. Raggi.


tívoli á laugarvegi

tók mega brunch á tívoli fékk toppþjónustu og borgaði 1650 fyrir mjög vel útilátin brunch sem er gott verð líka.Mæli með tívolí topp staðurSmile

eldsmiðjan suðurlandsbraut

var á hraðferð og skelti mér á hádeigis tilboð 1650 16" með tveimur álegstegundum sem var í góðu lagi enn ekkert afburða stuff svo sem en ekkert að þessu

Vestfirðir

Við vorum að koma heim af Flateyri þar sem við vorum aðeins að vesenast. Við borðuðum allar máltíðir þar heima hjá fólki sem við gistum hjá þannig að ekki er mikið hægt að segja um þann bæ annað en að við höfum fengið góðann og mikinn mat. Við fórum reyndar í N1 þar að versla nammi og kók og fundum þar einhverja verstu djúpsteykingarolíulykt sem við höfum fundið um ævina. Við vorum mjög fegnir að þurfa ekki að borða þar. Fórum í bíltúr á Þingeyri til að prufa N1 þar, ekki góð hugmynd. Bað um baconborgara og útlenska konan sem vann þarna reyndi að selja mér borgara með alskonar gumsi og baconi því að það stóð hvergi á matseðlinum "baconborgari". Ég nennti ekki að reyna að útskýra fyrir henni að mig langaði bara í bacon og ost þannig að ostborgari varð fyrir valinu. Borgarinn var vondur og ókryddaður og eina grænmetið á honum var KÍNAKÁL. Það setur enginn kínakál á borgara. Ekki víst að ég væri að skrifa þetta ef ég hefði fengið mér franskar líka.

 Kv. Raggi 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband