13.1.2011 | 08:46
Sukhothai
Þessi ágæti staður sem við höfum nokkrum sinnum borðað á er í Hamraborg Kópavogi. Við kynntumst þessum stað fyrst nú í sumar og höfum verið heillaðir af honum síðan. Við fórum þangað í lok seinustu viku, þannig að þessi færsla er ekki alveg ný :) Við fengum okkur báðir rétt af hádegismatseðli. Bjarki fékk sér rúllur og grjón og ég fékk mér kjúklingabita og franskar. Þetta er í annað sinn sem við prufum hádegistilboðin og við erum báðir sammála um að það er ekkert voðalega gott. Kjúklingurinn minn var sæmilegur en franskarnar ekki góðar. Bjarki var ekkert voðalega ánægður heldur með vorrúllurnar sínar. Við höfum oft pantað okkur af matseðli og alltaf verið mjög ánægðir með alla þá rétti sem við höfum fengið, þannig að við höldum því bara áfram. Við mælum hiklaust með þessum stað og hvetjum alla til að fara og fá sér af matseðlinum þar.
Kveðja Raggi.
9.1.2011 | 15:27
Salagrill
Fór í Salagrill í hádeginu í seinustu viku. Hafði farið þangað áður og vildi prufa fleira af matseðlinum. Pantaði mér máltíð á 800kall, bátur mánaðarinns, franskar og coke. Flott verð. Eftir um 20 mín í bið kom loks maturinn, en ekki minn heldur borgari. Eftir aðrar 5 mín kom þetta loks og bragðaðist bara ágætlega. Vonandi verða fleiri en einn starfsmaður á vakt næst þegar ég kem.
Kveðja Raggi.
7.1.2011 | 15:03
balkania endur heimsótt
jæja þarna þekki ég balakan matinn eins og ég hélt að hann yrði fyrst pantaði eitthvað sem ég hélt að væri pylsa og einhver steik enn annað kom á daginn þessi anskoti var mótað kjötfars vitiði að ég bara mæli ekki með þessum og læt það duga
kveðja
Bjarki
10.12.2010 | 23:21
balkanika kitchen
Fór með frúnni á balkania vegna góðra meðmæla hafði sjálfur séð staðinn á vitastíg og gert mikið grín að staðnum hver vill balkan mat enn hver hefði geta giskað á að þarna hefði maður fengið frábæran heimilis mat fekk mér einhvern kjúklinga pottrétt sem var rosalega góð var borinn framm með ristuðu brauði verðið var rétt um 1700 á mann og ég fór mjög sáttur heim eftir holla máltíð fer pottþétt aftur
kveðja Bjarki
25.11.2010 | 23:05
Aktu taktu
Fórum í morgun í Aktu taktu í mjódd. Við eru ekki hrifnir af þessum stað en þar sem við vorum á hraðferð og á leiðinni þar framhjá skelltum við okkur inn. Við fengum okkur sitthvorn tvöfalda ostborgarann og engar franskar (franskarnar eru ekkert spes). Við drekkum alltaf coke og engin breyting var á því þarna. Borgarinn var skárri á bragðið en einfaldur borgari og alls ekki vondur. Hann var heldur ekki góður, hann einhverneginn bara var þarna ef þið skiljið hvað ég á við.
Kveðja Ragginn.
23.11.2010 | 20:02
Pizza Italiano
Pizza Italiano er eðalstaður með eldbakaðar lummur í Hlíðarsmára 15. Staðurinn opnaði í haust og er vonandi kominn til að vera. Ég hef borðað þarna nokkrum sinnum áður og alltaf verið vel sáttur með matinn og þjónustuna, og það var engin undantekning í þetta sinn. Ég sótti tvær lummur fyrir kvöldmatinn handa fjölskyldunni og eins og mig grunaði voru allir ánægðir með matinn. Sósan, deigið og áleggið er fyrsta flokks á þessum eðal og ég hvet alla til að kíkja á þennann stað.
Kveðja Raggi.
2.11.2010 | 20:07
Castello - Reykjavíkurvegi Hfj.
Þessi Staður hefur aldrei klikkað hjá okkur og þjónustan alltaf verið til fyrirmyndar. 9" með þremur og coke á 1090 kall er flott verð fyrir eldbakaðar eðallummur. Við fengum okkur sitthvora í dag og urðum ekki fyrir vonbrigðum frekar en fyrri daginn. Sósan, brauðið, og áleggið er allt fyrsta flokks þarna. Það er slatti ostur settur ofaná pizzuna sem er gott nema fyrir skrítið fólk eins og Bjarka sem vilja bara ost undir áleggið. Það er þá bara að biðja bakarann um að róa sig í ostinum. Þetta er svo sannarlega einn af okkar uppáhaldsstöðum.
Kveðja Raggi ánægði.
2.11.2010 | 19:57
Rakang Thai - Lynghálsi
Fórum í fyrsta sinn á þennan stað í gær. Það er bara opið í kringum hádegið og við bara rétt náðum áður en lokaði. Nóg er af sætum og klósettum þannig að enginn ætti að þurfa að standa meðan hann borðar. Við skelltum okkur báðir á Panang úr borði á 990 kall rétturinn. Maturinn virtist fínn en þegar maður var ca hálfnaður fór manni að finnast mar vera búinn að borða nóg af þessum rétti. Vonandi eru hinir réttirnir meira spennandi en það sem við fengum okkur. Semsagt ætilegur matur en óspennandi.
Kveðja Raggi matgæðingur.
26.10.2010 | 21:52
Snæland Selfossi
Ég var á Selfossi í dag og eins og utanbæjarmenn (fólk ekki frá Selfossi) vita er ekki mikið um góða staði þar að borða á. Ég hef borðað á nánast öllum stöðum þarna og ákvað að fara á Snæland. Verðið er alltaf fínt þar og góð aðstaða til að borða. Þar sem ég er hamborgarasjúkur fék ég mér eins og svo oft áður ostborgaratilboð. Ég er alltaf hrifinn af frönskunum þeirra, mjóar og langar. borgarinn var bara fínn, kannski full mikið af sósu en ekkert alvarlegt. Þannig að máltíðin var bara í heildina nokkuð fín miðað við hvar ég var að borða. Korteri eftir matinn fékk ég sömu tilfinningu í magann og stundum áður þegar ég hef borðað á þessum stöðum, ekki góða :( Ég rétt náði á næsta kamar og sem betur fer tók það fljótt af. Hvort þetta hafi eitthvað með matinn þeirra að gera eða ekki vil ég sem minnst segja um.
Kveðja Raggi
19.10.2010 | 22:31
Olís v. Rauðavatn
Við tékkuðum á þessum stað á leið út úr bænum í dag og gleðin skein úr andliti Bjarka eftir matinn. Bjarki fékk sér quiznos með nautakjöti, man ekki hvað báturinn hét. Þegar maturinn loks kom á borðið brosti ég því að brauðið hans Bjarka var vel brennt og leit ekkki vel út. Báturinn var alveg bragðlaus eins og svo oft er með nautabáta og lokur. Þannig að Bjarki var frekar svekktur með matinn sinn. Ég fékk baconborgara tilboð. Franskarnar voru ætar en ekki meira en það. borgarinn var sæmilegur enda bjóst ég ekki við neinu þar sem ég var að borða á bensínstöð. Hefði mátt vera meira bacon á borgaranum samt.
Raggi.