17.9.2010 | 22:14
Grill
Við erum búnir að vera uppi í sveit og höfum grillað seinustu daga. Svo sem ekki mikið um það að segja, bara þessir venjulegu borgarar, rif og buffalavængir. Í næstu viku förum við á vestfyrðina og ég efast ekki um að við eigum eftir að finna vafasamann mat þar.
Kv. Raggi
15.9.2010 | 21:29
borgarnes f...... aftur
13.9.2010 | 22:37
Pulsur
Ekki merkilegt hjá okkur í dag, pulsur og kók heima hjá kallinum. Vonandi eitthvað meir spennandi á morgun.
Kv. Raggi.
10.9.2010 | 17:50
1944
Ekki merkilegur matur í dag. Vorum að vinna uppi í sveit og borðuðum 1944. Ég fékk mér kjötbollur í brúnni sósu sem eru sæmilegasti réttur. Bjarki hélt að hann væri með hangikjöt en þegar hann fór að hita matinn benti ég honum á að hann væri með saltkjöt. Það vakti mikla kátínu hjá honum :) Honum fannst kjötið vont.
Kv. Raggi.
10.9.2010 | 06:19
Bangkok í smiðjuhverfi
8.9.2010 | 20:54
Haninn Suðurlandsbraut 46
Fórum á Hanann í dag með tveim félögum. Kjúklingastaður með alvöru grilli. Félagar okkar fengu sér kjúklingaborgara og fundust þeir ekkert spes. Við Bjarki fengum okkur þriggja bita máltíð með frönskum og gosi (pepsi). Kjúklingurinn var nokkuð góður og alveg hægt að mæla með honum. Við báðum um piripiri sósu á bitana okkar og fengum sósu sem minnti helst á sweetchillysósu og var ekkert sterk, soldið glatað. franskarnar voru nokkuð góðar og vel ætar. Það eru tveir gallar á þessum annars ágæta stað. Í fyrsta lagi virðast kjúklingabitarnir vera af einhverskonar dverghænsn og svo er verðið full hátt fyrir iðnaðarmenn eða um 1400 kall máltíðin.
Kv. Raggi.
7.9.2010 | 20:27
shell skálinn borgarnesi
Ég fékk mér borgara með egg og beikon og Raggi kjúlla og franskar + súpu á 1300 og eitthvað sem er ekki slæmt verð það .Kjúllinn var hvorki góður né vondur og með honum var boðið upp á paprikusósu sem var ekki góð franskarnar voru vondar sem virðist vera standard. Borgarinn var alltof dýr 998 + 155 fyrir beikon +130 fyrir egg úff en hann var reyndar góður. Niðurlag ekki til fyrimyndar shell skálinn kæmist upp þetta fyrir minna af seðlum;)
6.9.2010 | 18:51
Olís Borgarnesi.
Ekki er hægt að segja mikið gott um matarferðina sem farin var í dag. Bjarki fékk sér súperborgaramáltíð, sem er 140gr borgari með sveppum og ýmsu öðru ásamt frönskum, sósu og kóki. Máltíðin kostaði 1190 kr. Borgarinn var ekkert sérstakur, bara lala. Franskarnar voru vondar, minntu soldið á aktu taktu franskar. Það er ekki hægt að ætlast til að nokkur maður borði mikið af svoleiðis frönskum. Ég tók mikla áhættu og fékk mér 9 tommu pizzu með pepperoni og skinku á 940 kr en eins og allir vita eru sjoppupizzur sjaldan góðar. Og sú varð raunin nú. Brauðið var ekki gott og sósan var svo bragðlaus að það gat allt eins verið vatn með rauðum sósulit á pizzunni. Aldrei áður hef ég fengið vonda skinku á pizzu en einhvern tímann er allt fyrst. Enginn ostur var undir álegginu bara ofan á, sem er eitthvað sem er alveg nýtt fyrir mér. Niðurstaðan er versta pizza sem ég hef fengið og ég hef borðað fleiri pizzur en Mario og Luigi til samans.
Kv. Raggi
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 18:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.9.2010 | 22:08
Grillnesti Mosó
Fórum í dag á Grillnesti í mosfellsbæ í þriðja sinn í vikunni. Þetta eru með betri sjoppuborgurum sem mar fær þessa dagana, muna bara að sleppa frönskunum. Stelpurnar alltaf jafn almennilegar og það gerir matinn bara enn betri. Erum að verða búnir með verkið við Esjuna þannig að við förum loks að fá fjölbreyttari fæðu í næstu viku.
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 22:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)