Rikki Chan Stjörnutorgi

Ég kom við í kringluni seinnipart dagsins til að fá mér eitthvað að éta. Eftir góða umhugsun skellti ég mér á Rikka og gerðist svo djarfur að fá mér tilbúinn rétt úr borðinu. Ég hafði ekki farið á umræddann stað í langann tíma því að mér hefur ekki þótt það spennandi maturinn þar og reyndar frekar ómerkilegur. Ég hef nánast alltaf fengið mér tilbúið úr borðinu þeirra og það er nú nánast alltaf minna varið í það en það sem maður pantar af seðlinum, sama hvaða stað maður er á.

Það var hægt að velja úr slatta rétta og bara frekar gott úrvalið svoa miðað við á Íslandi. Á edanum varð "svínakjöt í sterku karrí" fyrir valinu og bjóst ég ekki við mjög sterkum rétti þar sem  það er oft erfitt að fá almenilega sterka rétti nema biðja sérstaklega um það og ítreka að maður þoli vel sterkt. Verðið var svipað og á öðrum austurlenskum skyndibitastöðum 1.400;kr að mig minnir.

Það kom mér skemmtilega á óvart að rétturinn var bragðgóður, svínkjötið vel mjúkt og rosalega var þetta STERKT! Mér sveið í muninn og gott ef ég hafi ekki dofnað soldið í framan líka. Svona eiga sterkir réttir að vera. Ég var mjög sáttur með máltíðina  og mun ekki láta líða svona langt á milli heimsókna næst.

 

Kveðja Raggi. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

  Gaman að sjá að þið eruð á lífi hef saknað pistlanna frá ykkur

sverrir Halldorsson (IP-tala skráð) 12.2.2013 kl. 14:38

2 Smámynd: Tonnatak ehf

Takk kærlega Sverrir. núna er vonandi löngu letitímabili lokið :)

Tonnatak ehf, 15.2.2013 kl. 20:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband