21.2.2011 | 21:13
Búllan á Höfða
Við fórum fyrir stuttu á Hamborgarabúlluna og skelltum okkur á steikarborgara og franskar, og auðvitað Coke að drekka. Bjarki er voða hrifinn af þessum stöðum en mér finnst ekki mikið til þeirra koma. Bjarki var mjög sáttur með borgarann sinn en ég var ekki alveg jafn ánægður. Mér finnst grænmetið á borgaranum af mjög skornum skammti og ég er hrifnari af þessum hefbundnu hamborgarasósum sem mar fær oftast hér á landi en því sem þeir skella á borgarann á Búllunni. Franskarnar voru annars fínar og coke-ið skolaði þessu öllu vel niður. Semsagt við erum ekki sammála um þennann stað og ég er sammála þeim fjölmörgu sem finnst hann ofmetinn.
Kveðja Raggi.
Flokkur: Matur og drykkur | Facebook
Athugasemdir
Hvaða sósu ertu að tala um? Alvöru hamborgarar eru meðal þykkir úr úrvals nautakjöti og eldsteiktir á logandi hlóðum og með hvítlaukssalti/dufti stráð yfir meðan þeir steikjast. Síðan er sjálfsagt að hafa hvítlaukssósu inn á milli tveggja svona borgara í einu nýhitaðri brauðbollu með tilheyrandi grænmeti (tómat, gúrku og annað gott, en lítið af græna draslinu, salatblöðum). Hamborgarasósa úr plastflösku á góðan borgara er dauðasynd.
Ég hef aldrei farið á Hamborgarabúlluna, en það gæti verið að ég prófa einhvern daginn.
Vendetta, 21.2.2011 kl. 22:26
Búllan er frábær. Mæli með að menn fái sér bernaise sósuna þeirra með frönskunum, gjörsamlega geggjað!!!
Steini (IP-tala skráð) 22.2.2011 kl. 10:21
Ég hef ekki prufað bernaise sósuna þeirra enda er ég minna fyrir slíkar sósur en flestir aðrir. Ég hef alveg prufað fleira af matseðlinum þarna áður og bara þótt það sæmilegt.
Ef ég móðga einhverja af hinum fjölmörgu aðdáendum búllurnar verður bara að hafa það, mér er alveg sama :)
Tonnatak ehf, 28.2.2011 kl. 21:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.