Aktu taktu

Fórum í morgun í Aktu taktu í mjódd. Við eru ekki hrifnir af þessum stað en þar sem við vorum á hraðferð og á leiðinni þar framhjá skelltum við okkur inn. Við fengum okkur sitthvorn tvöfalda ostborgarann og engar franskar (franskarnar eru ekkert spes). Við drekkum alltaf coke og engin breyting var á því þarna. Borgarinn var skárri á bragðið en einfaldur borgari og alls ekki vondur. Hann var heldur ekki góður, hann einhverneginn bara var þarna ef þið skiljið hvað ég á við.

Kveðja Ragginn. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Ragginn,sé að þér þykir matur góður,mig langar að benda þér á veitingastaðinn Hoflandsetrið í Hveragerð,þar tel ég að þú yrðir ánægður með allan viðgjörning,já þar eru að ég tel, bestu PIZZUR á markaðinum í dag.

Sigurður H.Tryggvason (IP-tala skráð) 25.11.2010 kl. 23:55

2 Smámynd: Ingibjörg Magnúsdóttir

Er ekki bara hamborgari hamborgari, burt séð frá frönskum. Þið þurfuð á skyndibita að halda og sem hvar hvorki vondur né góður.

Skil þetta vel. Kaupi mér stundum hamborgara hjá Nonnabita í Hafnarstræti. Tilboð með frönskum og gosi. Þetta er fínn biti og ég næ ekki að torga öllum frönskunum og pakka þeim inn í nesti. Ég lít á þetta sem skyndibita, þegar ég veit að ég nenni ekki að elda heima. En hvort sem borgarinn er betri eða verri en annars staðar, veit ég ekki, en hann er alla vega  góður fyrir mig, sem og stórar og góðar franskar með.

Auðvitað kysi ég, að geta verið að borða góða steik heima, en aðstæður bjóða ekku upp á það. Þess vegna getur verið rosalega got að nýta sér skyndibita. Og ég held að hamborgari á einum stað sé ekkert verri en hamborgani á öðrum stað. Ef þú veist hvað ég meina?

En ég segi bara, verði þér að góðu, hvar sem þú borðar næst. :)

Ingibjörg Magnúsdóttir, 26.11.2010 kl. 00:02

3 Smámynd: Grefill

Ég skellti mér á Hamborgarafabrikkuna í fyrsta skipti um daginn og fékk mér rétt nr. 1 = Fabrikkuborgara með frönskum fyrir tólf hundruð kall.

Bjóst við góðu og hann uppfyllti það með A+.

Tvímælalaust einn af þremur bestu borgurum sem ég hef fengið + létt, hröð og skemmtileg þjónusta. Vona að þeir slái aldrei slöku við í gæðunum.

Grefill, 26.11.2010 kl. 00:47

4 Smámynd: Tonnatak ehf

Við höfum ekki enn borðað á Hoflandssetrinu, en eigum örugglega eftir að fara þangað einhverntímann.

Ég sjálfur hef ekki farið á Fabrikuna að borða en hef heyrt góða hluti um staðinn.

Hamborgarar virðast hvergi vera eins og ótrúlega mikill munur á milli staða eftir því hvaða kjöt er notað, hvaða sósa og eldunaraðferð. Í sjoppum býst maður yfirleitt ekki við neinu en á stöðum eins og Fabrikunni vill mar hafa ákveðin gæði.

Kveðja Raggi.

Tonnatak ehf, 29.11.2010 kl. 15:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband