Castello - Reykjavíkurvegi Hfj.

Þessi Staður hefur aldrei klikkað hjá okkur og þjónustan alltaf verið til fyrirmyndar. 9" með þremur og coke á 1090 kall er flott verð fyrir eldbakaðar eðallummur. Við fengum okkur sitthvora í dag og urðum ekki fyrir vonbrigðum frekar en fyrri daginn. Sósan, brauðið, og áleggið er allt fyrsta flokks þarna. Það er slatti ostur settur ofaná pizzuna sem er gott nema fyrir skrítið fólk eins og Bjarka sem  vilja bara ost undir áleggið. Það er þá bara að biðja bakarann um að róa sig í ostinum. Þetta er svo sannarlega einn af okkar uppáhaldsstöðum.

Kveðja Raggi ánægði.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Djöfull er gaman að lesa þetta hjá ykkur, þessi fer í favorites. Castello er klárlega einn allra besti pizzastaður landsins.

Jói (IP-tala skráð) 3.11.2010 kl. 17:15

2 Smámynd: Tonnatak ehf

Jói það gleður okkur alltaf að heyra að fólk hafi gaman af því sem við erum að gera. Ef þú villt góðar pizzur mælum við líka með Pizza Italiano í smárahverfinu í kópavogi. Eldbakaður eðall.

Tonnatak ehf, 4.11.2010 kl. 08:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband