6.10.2010 | 19:34
Hlölli
Við fórum á hlölla uppi á höfða í gær. Bátur og kók á 1200 kall. Fengum okkur báðir "Tudda" sem er með nauti og baconi. Það hefði mátt vera meir af baconi og nautið var ekki merkilegt. Ég hafði vit á að biðja um littla sósu á minn en Bjarki ekki og viti menn það var of mikið af sósu á bátnum hans. Það virðist vera sem að sumir halda að því meira af sósu því betra eigi alltaf við. Þjónustan var mjög hröð eins og venjulega hjá þeim og báturinn alllt í lagi. Mar fær sér bara öðruvísi bát næst.
Kvþ Raggi.
Flokkur: Matur og drykkur | Facebook
Athugasemdir
Uss, ég er löngu hættur að fá mér Hlölla. Okurverð og allt of lítið álegg ... a.m.k. á Línubátnum sem mér fannst bestur.
Hólímólí (IP-tala skráð) 6.10.2010 kl. 20:03
Já það er soldið mismunandi milli báta hvort manni finnst mar vera svikinn eða ekki.
Raggi (IP-tala skráð) 10.10.2010 kl. 11:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.