8.9.2010 | 20:54
Haninn Suðurlandsbraut 46
Fórum á Hanann í dag með tveim félögum. Kjúklingastaður með alvöru grilli. Félagar okkar fengu sér kjúklingaborgara og fundust þeir ekkert spes. Við Bjarki fengum okkur þriggja bita máltíð með frönskum og gosi (pepsi). Kjúklingurinn var nokkuð góður og alveg hægt að mæla með honum. Við báðum um piripiri sósu á bitana okkar og fengum sósu sem minnti helst á sweetchillysósu og var ekkert sterk, soldið glatað. franskarnar voru nokkuð góðar og vel ætar. Það eru tveir gallar á þessum annars ágæta stað. Í fyrsta lagi virðast kjúklingabitarnir vera af einhverskonar dverghænsn og svo er verðið full hátt fyrir iðnaðarmenn eða um 1400 kall máltíðin.
Kv. Raggi.
Flokkur: Matur og drykkur | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.