Færsluflokkur: Matur og drykkur
7.5.2013 | 22:55
Nam
Við höfðum bara heyrt góða hluti um Nam sem staðsettur er í N1 við vesturlandsveg. Við vorum spenntir að prufa staðinn og sjá hvort fólk væri að ljúga að okkur eða jafnvel veruleikafirrt. En það hefur oft verið raunin þegar okkur er bennt á staði.
Staðurinn er settur nákvæmlega eins upp og Serrano sem er í sama húsi. Þú byrjar á einum enda afgreiðsluborðsins velur hráefni í skálina þína, færir þig eftir borðinu og velur fleira og fleira þar til skálin er orðin full af því sem þér líst best á.
Við vorum sammála um að maturinn væri nokkuð góður og fundum ekkert að setja út á annað en að þetta væri full dýrt eða tæpur 2000kall á mann ef kjöt var valið á diskinn. Við myndum aldrei borga fyrir mat sem ekki innihéldi kjöt, og hvað þá borða það.
Skellið ykkur alla vega einu sinni á þennann stað og þá getið þið ákveðið sjálf hvort þetta sé of dýrt.
7.4.2013 | 22:31
Olís Selfossi
Við áttum leið gegnum Selfoss í dag og gerðum soldið sem er ekki í uppáhaldi hjá okkur frekar en nokkrum öðrum þe. að borða á bensínstöð.
Bjarki fékk sér egg og beikon með ristuðu brauði og ég beikonborgara og franskar. (Sjá mynd). Bjarki var saddur og sáttur eftir matinn sinn enda er ekki hægt að klúðra jafn einföldum rétt. Borgarinn minn var ekki ógeð en langt frá því að vera verðlaunastykki. Franskarnar voru bara þessar venjulegu, örlítið þykkari en strá. Mig minnir að borgarinn hafi verið á 11-1200 kall án drykkjar og það er of mikið fyrir svona máltíð.
Það jákvæðasta sem ég tek úr þessari ferð er að það var fínt að sitja þarna og kamarinn var hreinn þegar við komum.
9.3.2013 | 20:28
Fönix - Bíldshöfði 12
Félagi okkar sagði okkur frá þessum stað um daginn og hvatti okkur til að prufa hann. Hann sagði að það væri vel hægt að borða sig saddann á hádegishlaðborðinu þeirra, sem við komumst að á fimmtudag að var satt hjá honum. Kínverskur matur er ekkert í uppáhaldi hjá okkur en við vildum endilega prufa staðinn. Nóg er af sætum inni og samkvæmt Bjarka var klósettið í lagi þó það hefði mátt vera mýkri pappír.
Ég man ekki hve margir réttir voru í boði en það voru allavega nógu margir fyrir okkur. Við prufuðum nokkra rétti hvor og vorum sammála um að maturinn væri ætur og virtist vera notað fínasta hráefni. Sem sagt maturinn í lagi, við fórum saddir út og lítið meir um það að segja.
13.2.2013 | 23:22
Pizza Italiano
Við félagarnir skelltum okkur á Þennan eðal stað í hádeginu og vissum að við yrðum ekki fyrir vonbrigðum frekar en fyrri daginn. Snillingarnir eru með flott verð í hádeginu eða 12" með tveim og gos með fyrir 1290 kall. Hægt er að fá auka álegg fyrir 150 kall.
Pizzurnar eru bakaðar í steinofni og er það lítið síðra en eldbakað. Staðurinn er snyrtilegur, flottur og nóg af sætum.
Þegar bökurnar komu sáum við að kryddin sem við höfðum beðið um höfðu víxlast, en við nenntum ekki að gera veður út af því þar sem báðar bökurnar voru góðar. Enn og aftur góður matur og sennilega besta pizzasósan á markaðnum í dag.
Kveðja Raggi Ánægði :)
11.2.2013 | 23:17
Rikki Chan Stjörnutorgi
Ég kom við í kringluni seinnipart dagsins til að fá mér eitthvað að éta. Eftir góða umhugsun skellti ég mér á Rikka og gerðist svo djarfur að fá mér tilbúinn rétt úr borðinu. Ég hafði ekki farið á umræddann stað í langann tíma því að mér hefur ekki þótt það spennandi maturinn þar og reyndar frekar ómerkilegur. Ég hef nánast alltaf fengið mér tilbúið úr borðinu þeirra og það er nú nánast alltaf minna varið í það en það sem maður pantar af seðlinum, sama hvaða stað maður er á.
Það var hægt að velja úr slatta rétta og bara frekar gott úrvalið svoa miðað við á Íslandi. Á edanum varð "svínakjöt í sterku karrí" fyrir valinu og bjóst ég ekki við mjög sterkum rétti þar sem það er oft erfitt að fá almenilega sterka rétti nema biðja sérstaklega um það og ítreka að maður þoli vel sterkt. Verðið var svipað og á öðrum austurlenskum skyndibitastöðum 1.400;kr að mig minnir.
Það kom mér skemmtilega á óvart að rétturinn var bragðgóður, svínkjötið vel mjúkt og rosalega var þetta STERKT! Mér sveið í muninn og gott ef ég hafi ekki dofnað soldið í framan líka. Svona eiga sterkir réttir að vera. Ég var mjög sáttur með máltíðina og mun ekki láta líða svona langt á milli heimsókna næst.
Kveðja Raggi.
10.2.2012 | 23:36
Eldofninn
Við félagarnir áttum leið hjá Eldofninum við Bústaðaveg í hádeginu í dag og þar sem Bjarki hafði borðað þarna áður og verið mjög ánægður skelltum við okkur inn. Staðurinn lítur vel út með nóg af stólum og borðum. Við fengum okkur sitthvort tilboðið, 12" með tveim og coke á 1600. Þar sem ég pantaði með pepperoni, bacon og svörtum pipar var ég rukkaður um 50kr aukalega fyrir piparinn. Á öllum mínum ferli sem pizzaæta hef ég eldrei áður verið rukkaður fyrir smá pipar á lummuna. Þessi skítni 50kall varð til þess að ég ákvað að borða aldrei framar hjá þessu fólki og það án þess að smakka matinn.
Baconið á lummunni var í sneiðum og nóg af því sem eru sjaldséðir kostir. Piparinn var af skornum skammti og þar sem enginn pipar var á borðinu þorði ég ekki að biðja um meiri svo ég færi nú ekki á hausinn. Sósan fannst mér ómerkileg og bragðlaus, en brauðið var sæmilegt.
Í heildina fannst mér pizzan það ómerkileg að ég myndi ekki sækja í þetta, en vegna piparmálsins stóra mun ég aldrei borða þetta framar.
Kveðja Raggi.
1.5.2011 | 23:03
Salagrill
Við félagarnir höfum farið nokkrum sinnum í Salagrill upp á síðkastið að troða í okkur. Það virðist hafa verið einsdæmi það sem ég lenti í um daginn þegar ég fékk rangann mat eftir langa bið. Það hefur nefnilega allt verið tipp topp með þjónustuna þarna öll hin skiptin okkar. Bjarki er orðinn óður í kjúklingasalatið þeirra sem er einkar vel útilátið og ég er fastur í borgurunum eins og venjulega. Fínasti staður, góð þjónusta og ódýrt :)
Kveðja Raggi.
28.2.2011 | 21:33
Food station Smáratorgi
Þvílikt rusl!!!! Ég kíkti þangað í hádeginu á föstudaginn og sé eftir hverri krónu. Fékk mér ostborgara, franskar, kokteilsósu og 7up og kostaði pakkinn rúmar 2200kr. Sem hefði verið í lagi fyrir góðan mat en þetta var langt frá því. Ég hugsa að nautakjöt hafi verið í lágmarki í kjötklessunni á milli brauðanna og bragðaðist það skelfilega. Stelpurnar þarna virtust vera að reyna að bæta kjötið upp með mikilli sósu og það var ekki alveg að gera sig. Franskarnar voru annars sæmilegar og kom ég þeim öllum niður sem reyndar gerist ekki alltaf.
Hægt er líka að kaupa heimilismat þarna í hádeginu og ég trúi ekki öðru en að það sé skárra en draslið sem ég píndi í mig þennann eftirminnilega dag.
Kveðja Raggi.
21.2.2011 | 21:13
Búllan á Höfða
Við fórum fyrir stuttu á Hamborgarabúlluna og skelltum okkur á steikarborgara og franskar, og auðvitað Coke að drekka. Bjarki er voða hrifinn af þessum stöðum en mér finnst ekki mikið til þeirra koma. Bjarki var mjög sáttur með borgarann sinn en ég var ekki alveg jafn ánægður. Mér finnst grænmetið á borgaranum af mjög skornum skammti og ég er hrifnari af þessum hefbundnu hamborgarasósum sem mar fær oftast hér á landi en því sem þeir skella á borgarann á Búllunni. Franskarnar voru annars fínar og coke-ið skolaði þessu öllu vel niður. Semsagt við erum ekki sammála um þennann stað og ég er sammála þeim fjölmörgu sem finnst hann ofmetinn.
Kveðja Raggi.
13.1.2011 | 17:41
pitzzahornið í mjódd
við Raggi skelltum okkur á þennan forláta pitzza stað ætluðum reyndar að fara á big papas enn sá staður var greinilega ekki þar leingur. Feingum okkur tilboð með gosi sem var á sæmilegu verði enn gæðin vantaði fannst reyndar nokkuð til koma hversu jafn ómerkileg þessi pitzza var nokkur metnaður að allt væri svipað slakt bakan var með pepparoni og kjúlla og fær falleinkunn
kveðja
löggu Bjarkinn