10.2.2012 | 23:36
Eldofninn
Við félagarnir áttum leið hjá Eldofninum við Bústaðaveg í hádeginu í dag og þar sem Bjarki hafði borðað þarna áður og verið mjög ánægður skelltum við okkur inn. Staðurinn lítur vel út með nóg af stólum og borðum. Við fengum okkur sitthvort tilboðið, 12" með tveim og coke á 1600. Þar sem ég pantaði með pepperoni, bacon og svörtum pipar var ég rukkaður um 50kr aukalega fyrir piparinn. Á öllum mínum ferli sem pizzaæta hef ég eldrei áður verið rukkaður fyrir smá pipar á lummuna. Þessi skítni 50kall varð til þess að ég ákvað að borða aldrei framar hjá þessu fólki og það án þess að smakka matinn.
Baconið á lummunni var í sneiðum og nóg af því sem eru sjaldséðir kostir. Piparinn var af skornum skammti og þar sem enginn pipar var á borðinu þorði ég ekki að biðja um meiri svo ég færi nú ekki á hausinn. Sósan fannst mér ómerkileg og bragðlaus, en brauðið var sæmilegt.
Í heildina fannst mér pizzan það ómerkileg að ég myndi ekki sækja í þetta, en vegna piparmálsins stóra mun ég aldrei borða þetta framar.
Kveðja Raggi.
1.5.2011 | 23:03
Salagrill
Við félagarnir höfum farið nokkrum sinnum í Salagrill upp á síðkastið að troða í okkur. Það virðist hafa verið einsdæmi það sem ég lenti í um daginn þegar ég fékk rangann mat eftir langa bið. Það hefur nefnilega allt verið tipp topp með þjónustuna þarna öll hin skiptin okkar. Bjarki er orðinn óður í kjúklingasalatið þeirra sem er einkar vel útilátið og ég er fastur í borgurunum eins og venjulega. Fínasti staður, góð þjónusta og ódýrt :)
Kveðja Raggi.
28.2.2011 | 21:33
Food station Smáratorgi
Þvílikt rusl!!!! Ég kíkti þangað í hádeginu á föstudaginn og sé eftir hverri krónu. Fékk mér ostborgara, franskar, kokteilsósu og 7up og kostaði pakkinn rúmar 2200kr. Sem hefði verið í lagi fyrir góðan mat en þetta var langt frá því. Ég hugsa að nautakjöt hafi verið í lágmarki í kjötklessunni á milli brauðanna og bragðaðist það skelfilega. Stelpurnar þarna virtust vera að reyna að bæta kjötið upp með mikilli sósu og það var ekki alveg að gera sig. Franskarnar voru annars sæmilegar og kom ég þeim öllum niður sem reyndar gerist ekki alltaf.
Hægt er líka að kaupa heimilismat þarna í hádeginu og ég trúi ekki öðru en að það sé skárra en draslið sem ég píndi í mig þennann eftirminnilega dag.
Kveðja Raggi.
21.2.2011 | 21:13
Búllan á Höfða
Við fórum fyrir stuttu á Hamborgarabúlluna og skelltum okkur á steikarborgara og franskar, og auðvitað Coke að drekka. Bjarki er voða hrifinn af þessum stöðum en mér finnst ekki mikið til þeirra koma. Bjarki var mjög sáttur með borgarann sinn en ég var ekki alveg jafn ánægður. Mér finnst grænmetið á borgaranum af mjög skornum skammti og ég er hrifnari af þessum hefbundnu hamborgarasósum sem mar fær oftast hér á landi en því sem þeir skella á borgarann á Búllunni. Franskarnar voru annars fínar og coke-ið skolaði þessu öllu vel niður. Semsagt við erum ekki sammála um þennann stað og ég er sammála þeim fjölmörgu sem finnst hann ofmetinn.
Kveðja Raggi.
13.1.2011 | 17:41
pitzzahornið í mjódd
við Raggi skelltum okkur á þennan forláta pitzza stað ætluðum reyndar að fara á big papas enn sá staður var greinilega ekki þar leingur. Feingum okkur tilboð með gosi sem var á sæmilegu verði enn gæðin vantaði fannst reyndar nokkuð til koma hversu jafn ómerkileg þessi pitzza var nokkur metnaður að allt væri svipað slakt bakan var með pepparoni og kjúlla og fær falleinkunn
kveðja
löggu Bjarkinn
13.1.2011 | 08:46
Sukhothai
Þessi ágæti staður sem við höfum nokkrum sinnum borðað á er í Hamraborg Kópavogi. Við kynntumst þessum stað fyrst nú í sumar og höfum verið heillaðir af honum síðan. Við fórum þangað í lok seinustu viku, þannig að þessi færsla er ekki alveg ný :) Við fengum okkur báðir rétt af hádegismatseðli. Bjarki fékk sér rúllur og grjón og ég fékk mér kjúklingabita og franskar. Þetta er í annað sinn sem við prufum hádegistilboðin og við erum báðir sammála um að það er ekkert voðalega gott. Kjúklingurinn minn var sæmilegur en franskarnar ekki góðar. Bjarki var ekkert voðalega ánægður heldur með vorrúllurnar sínar. Við höfum oft pantað okkur af matseðli og alltaf verið mjög ánægðir með alla þá rétti sem við höfum fengið, þannig að við höldum því bara áfram. Við mælum hiklaust með þessum stað og hvetjum alla til að fara og fá sér af matseðlinum þar.
Kveðja Raggi.
9.1.2011 | 15:27
Salagrill
Fór í Salagrill í hádeginu í seinustu viku. Hafði farið þangað áður og vildi prufa fleira af matseðlinum. Pantaði mér máltíð á 800kall, bátur mánaðarinns, franskar og coke. Flott verð. Eftir um 20 mín í bið kom loks maturinn, en ekki minn heldur borgari. Eftir aðrar 5 mín kom þetta loks og bragðaðist bara ágætlega. Vonandi verða fleiri en einn starfsmaður á vakt næst þegar ég kem.
Kveðja Raggi.
7.1.2011 | 15:03
balkania endur heimsótt
jæja þarna þekki ég balakan matinn eins og ég hélt að hann yrði fyrst pantaði eitthvað sem ég hélt að væri pylsa og einhver steik enn annað kom á daginn þessi anskoti var mótað kjötfars vitiði að ég bara mæli ekki með þessum og læt það duga
kveðja
Bjarki
10.12.2010 | 23:21
balkanika kitchen
Fór með frúnni á balkania vegna góðra meðmæla hafði sjálfur séð staðinn á vitastíg og gert mikið grín að staðnum hver vill balkan mat enn hver hefði geta giskað á að þarna hefði maður fengið frábæran heimilis mat fekk mér einhvern kjúklinga pottrétt sem var rosalega góð var borinn framm með ristuðu brauði verðið var rétt um 1700 á mann og ég fór mjög sáttur heim eftir holla máltíð fer pottþétt aftur
kveðja Bjarki
25.11.2010 | 23:05
Aktu taktu
Fórum í morgun í Aktu taktu í mjódd. Við eru ekki hrifnir af þessum stað en þar sem við vorum á hraðferð og á leiðinni þar framhjá skelltum við okkur inn. Við fengum okkur sitthvorn tvöfalda ostborgarann og engar franskar (franskarnar eru ekkert spes). Við drekkum alltaf coke og engin breyting var á því þarna. Borgarinn var skárri á bragðið en einfaldur borgari og alls ekki vondur. Hann var heldur ekki góður, hann einhverneginn bara var þarna ef þið skiljið hvað ég á við.
Kveðja Ragginn.





